Karfa

Samsung S711D – hvít hljóðstöng

99.990 kr.

Samsung S711D er grönn, hvít hljóðstöng (soundbar) með Dolby Atmos og bassaboxi. SpaceFit Sound lagar hljóðið að rýminu og Q-Symphony vinnur með samhæfu Samsung-sjónvarpi.

Pöntunarvara – aðeins sótt í verslun á Hafnarstræti 12, Ísafirði. Við staðfestum framboð og látum þig vita þegar varan er tilbúin.

Pöntunarvara

Vörunúmer: ORM-SAHW-S711D/XE Flokkur:

Vörulýsing

S711D er hvít hljóðstöng fyrir snyrtilega sjónvarpsuppsetningu. Hún er 3,8 cm há og kemur með bassaboxi. SpaceFit Sound stillir hljóminn að rýminu og Q-Symphony nýtir jafnframt hátalara samhæfs Samsung-sjónvarps.

Helstu eiginleikar

  • Dolby Atmos og DTS:X fyrir samhæft efni.
  • HDMI eARC, Wi-Fi og Bluetooth 5.2.
  • AirPlay 2 fyrir tónlistarstreymi.
  • Hljóðstöng: 89 × 3,8 × 4 cm (breidd × hæð × dýpt).

Bakhátalarar fylgja ekki með.